Ehm já, blogg?
Ég er náttúrulega algjörlega dottin úr allri þjálfun varðandi þetta blogg dæmi.
En eins og lang flestir ef ekki allir vita þá er ég stödd út í Danmörku og er í Sönderborg í Íþróttalýðháskóla. Það er rosalega fínt, mér líður allavega betur eftir einn dag í skólanum hér miðað við hvernig mér leið eftir einn skóladag í ME.
Ég er í Showdance í Aðalfagi og svo er ég í Hestamennsku í hliðarfagi. Síðasti tíminn í Ridning (Hestar) var í dag, þannig að ég þurfti að kveðja Zafír, sem er búin að vera hesturinn minn núna í haust, hann er búin að vera alveg yndislegur, latasti hesturinn og sá minnsti. Danskir hestar eru jú miklu meira en helmingi stærri en Íslenski hesturinn.
Showdance er búið að vera rosalega skemmtilegt líka, brjáluð brennsla í þrjá klukkutíma. Tókum oft svona Pump n' fitness tíma inn á milli, og það er nú bara ekkert grín að gera pallaæfingar og lyftingar í rúma þrjá klukkutíma. En það er samt svo gott. Ég var einmitt að koma úr Showdance tíma núna, en þar sem að við erum búin að læra alla dansana okkar, fórum við bara í skóla hér í nágrenninu og sýndum 6 ára krökkum hvað við værum búin að vera að læra, það var mjög gaman. Lítil börn eru svo sæt og áhugasöm.
En ég frétti líka að ég væri að fara til La Santa á Lanzarote sem er ein af Kanarí eyjunum á fimmtudagsnóttina. Við verðum á Íþróttahóteli, sem er út í auðninni, það er svo risastórt með eeeeeeeendalausum íþróttavöllum og sundlaugum og bara allt sem tengist íþróttum, það finnuru þarna. Ég er samt ekki að fara að slappa eitthvað af í hitanum, ónei, á fætur klukkan 7, út að hlaupa, showdance til klukkan 2, Jói fer að surfa þá, svo eru ýmiskonar fög eftir hádegi sem hægt er að velja um. Það er einn dagur sem að við fáum frí, og mig minnir að það sé fimmtudagurinn sem mun að öllum líkindum fara í drykkju og tan.
http://www.youtube.com/watch?v=np5XbeZHw2E&feature=related og hér er video um það sem koma skaaaal. Endilega skoðið það :)
Og já ég gæti pissað á mig af spenningi.
En vonandi eru bara allir í góðum gír þarna heima á frónni, sakna ykkar allra !
Posted at 06:55 am by
sandrama
Permalink